Erasmus er flaggskip Evrópusambandsins á sviði menntasamstarfs. Á hverju ári gerir Erasmus um tvöhundruð þúsund evrópskum stúdentum kleift að nema eða vinna erlendis.
Áætlunin styrkir samstarf háskóla á mörgum sviðum. Auk stúdentaskipta eru einnig styrkt kennaraskipti, starfsmannaskipti, sameiginleg námskeið, þróun kennsluefnis, samstarf háskóla og atvinnulífs, tungumálanámskeið fyrir skiptistúdenta og fleira.
Þátttaka
Erasmus áætlunin hófst árið 1987 en íslenskir háskólar hófu þátttöku í Erasmus áætluninni árið 1992 og hafa rúmlega 2500 íslenskir háskólastúdentar tekið hluta af námi sínu við evrópska háskóla á vegum hennar. Á síðustu árum hafa að meðaltali um 200 íslenskir stúdentar farið utan á hverju ári. Árlega hafa um 70 íslenskir háskólakennarar og starfsmenn háskóla tekið þátt í kennaraskiptum eða farið í starfsþjálfun. Um 300 erlendir Erasmus stúdentar koma árlega til að nema við íslenska háskóla og fer þeim sí fjölgandi.
Fáar, ef einhverjar, af áætlunum Evrópusambandsins hafa haft viðlíka viðtæk áhrif út um alla Evrópu. Nánast allar stofnanir á háskólastigi (90%) í Evrópu taka þátt, meira en 3.100 stofnanir í 31 landi. Um 2 milljónir stúdenta hafa tekið þátt frá því áætlunin hófst árið 1987. Árlega er úthlutað rúmlega 400 milljónum €.
Ávinningur
Rannsóknir hafa sýnt að það að taka hluta af námi erlendis hefur ekki eingöngu jákvæð áhrif á nám stúdenta heldur eflir það líka sjálfstraust og gerir einstaklinginn færan til takast á við hinn fjölþjóðlega heim. Starfsmannaskipti hafa sambærileg áhrif, bæði á þá sem taka þátt og einnig á stúdenta og starfsfólk þess skóla sem heimsóttur er.
Erasmus er fyrir:
- stúdenta
- Nám erlendis
- Vinna erlendis
- Tungumálaundirbúningur vegna náms erlendis
- starfsfólk háskóla
- háskólastofnanir
- fyrirtæki og stofnanir
Eftirtaldir íslenskir skólar taka þátt í Erasmus
- Háskóli Íslands
- Háskólinn í Reykjavík
- Listaháskóli Íslands
- Söngskólinn í Reykjavík
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Háskólinn á Bifröst
- Háskólinn á Hólum
- Háskólinn á Akureyri
Stúdentar og starfsmenn geta leitað til alþjóðafulltrúa síns skóla varðandi þá möguleika sem eru í boði í viðkomandi skóla. Einnig er hægt að hafa samband beint við landskrifstofu.


