Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Erasmus gerir starfsmönnum kleift að fara sem gestakennarar til samstarfsskóla eða fara í starfsþjálfun til samstarfsskóla eða annarrar stofnunar (þarf ekki að vera háskóli).
 

Skilyrði

Ekki er nein lágmarksdvöl vegna kennaraskipta en aðkoma að kennslu verður að vera í það minnsta 5 tímar. Starfsþjálfun skal að öllu jöfnu vera 5 dagar en þó er heimilt að víkja frá þeirri reglu í vissum tilvikum telji heimaskóli sérstakar ástæður fyrir því. Æskilegt er að heimaskóli beri slíkar undanþágur undir landskrifstofu Erasmus.  
Hámarksdvöl er 6 vikur.

Ekki er skilyrði að starfsmenn séu fastráðnir og geta t.d. stundakennarar sótt um.

Gestakennsla getur verið á hvaða námsstigi sem er, þar með talið doktorsnám. Gestakennslan getur líka verið á hvaða formi sem er (fyrirlestrar, leiðbeining framhaldsnema, málstofur, og fleira)
Starfsþjálfun getur verið á hvaða sviði sem er. Er í boði fyrir ALLA starfsmenn háskóla.

Hægt er að sækja um viðbótarstyrk vegna fötlunar.
 

Starfsmenn geta tekið þátt í:

  • Erasmus kennaraskiptum
  • Erasmus starfsþjálfun
  • Erasmus hraðnámskeiðum
  • Erasmus samstarfsverkefnum
  • Erasmus undirbúningsheimsóknir

Hægt er lesa um reynslu annarra af kennara eða starfsmannaskiptum hér. Hægt er að flokka lista eftir dálkum með því að smella efst á viðeigandi dálk. Tvísmella síðan á línu til að fá fram nánari upplýsingar.

Kennaraskipti og starfsþjálfun

  • Ferðakostnaður allt að 1000 €
  • Dagpeningar á bilinu 120-57 Evrur á dag (fer eftir lengd dvalar og lækka eftir því sem dvöl er lengri).
  • Heildarstyrkur getur ekki orðið hærri en 2000 €
     

Hraðnámskeið

Skólinn sem heldur námskeiðið greiðir styrkinn og getur hann verið breytilegur. Styrkurinn ætti að duga fyrir ferðakostnaði og  síðan sér gestaskóli oftast um húsnæði og uppihald.

Samstarfsverkefni

Skólinn sem stjórnar verkefninu heldur utan um styrkinn og greiðir til þátttakenda, t.d. vegna ferða og uppihaldskostnaðar  í tengslum við verkefnið.
 

Undirbúningsheimasóknir

Ef háskólar eru að skipuleggja Erasmus samstarfsverkefni er hægt að sækja um ferðastyrk vegna undirbúningsfundar samstarfsskólanna.