Erasmus - háskólastigið
Erasmus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu. Áætlunin styrkir ýmis konar verkefni, svo sem stúdenta og kennaraskipti, námsferðir starfsfólks háskóla og fólks í atvinnulífinu, sameiginlegt námskeiðahald, og fleira. Þannig styður Erasmus Bologna ferlið, sem stefnir að samfelldu evrópsku háskólasamfélagi.
Veigamesti þáttur í Erasmus áætluninni er að stuðla að hreyfanleika fólks úr háskólasamfélaginu um Evrópu. Í boði eru margvíslegir styrkir til stúdenta, kennara og starfsfólks og stærri samstarfsverkefni háskóla.
Reynslusögur
Fréttir og tilkynningar
Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum þegar send er inn umsókn um samstarfsverkefni:
Vista rafræna umsóknareyðublaðið á skjáborðið í tölvunni (eða á annan góðan stað, t.d. minniskubb eða dropbox) Loka vafraglugganum. Opna umsóknareyðublaðið frá skjáborðinu. - Fylla út eyðublaðið (í tölvunni)- Ekki þörf fyrir að vera nettengdur á meðan; Smella á Validate-hnappinn á rafræna forminu: Þessi aðgerð tryggir að allir skyldureitir séu útfylltir (og uppfylli lágmarkskröfu um ákveðið form framsetningar); Senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt: Ath. það er eingöngu stýristofnun samstarfsverkefna sem sendir umsóknina inn rafrænt. Til að senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt þarf tölvan að vera nettengd. Þá er smellt á hnappinn Submit online á öftustu síðunni. Ef sendingin heppnast kemur upp staðfesting á því; Prenta út umsóknina:, ath! allir samstarfaðilar þurfa að skila inn útprenti af umsókn með undirritun til sinnar Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests (póststimpill gildir) í þríriti (eitt frumrit með undirritun og tvö afrit).
ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)
| Deila þessari frétt: |
|
|


